MULBERRY PEELABLE WAX
Mulberry Pealable Wax 1 kg.
Vinnuvara – Heitt vax
Þetta fallega, lúxus vax er valið af bestu heilsulindum og stofum í Bretlandi og erlendis. Vaxið dreifist ofurþunnt og fjarlægir hvaða hár sem er hvar sem er á líkamanum og er fullkomið fyrir alla og öll kyn. Auðvelt er að bera vaxið á húðina og það harðnar mjög hratt. Vaxmeðferðin verður því skjót og skilvirk. Ekki þarf að nota vaxstrimla. Virkilega hagkvæmt vax sem kemur í 1. kg pokum.
Aðeins þarf að nota lítið vax í einu og því borið á í átt að hárvexti. Notaðu þéttan þrýsting með spaðanum til að þrýsta vaxinu alveg niður að húðinni. Vaxið þornar nánast strax. Lyftu horninu af vaxinu og dragðu af í gagnstæða átt.
Innihaldsefni: Glyceryl Rosinate, Cera Alba (beeswax), Colophonium (rosin), Ethylene/va Copolymer, Lanolin, Triethanolamine, Argania Spinosa Kernel Oil, Corylus Avellana (hazel) Seed Oil, Theobroma Grandiflorum Seed Butter, Synthetic Wax, Isopropyl Titanium Triisostearate, Calcium Sodium Borosilicate, Parfum (fragrance), Bht, Citral, Limonene, Tin Oxide, Ci 45410 (red 27 Lake), Ci60725 (violet 2), Ci77499 (iron oxides), Ci77891 (titanium dioxide)
Vörunúmer: 7006
Helstu ráðin okkar fyrir og eftir vaxmeðferð!
Fyrir vax:
- Hárin þurfa að vera minnst ½ cm að lengd svo árangur náist með fullkomnum hætti. Best er að endurtaka vaxmeðferð á 4-6 vikna fresti og sleppa öllum rakstri eða öðrum háreyðingarmeðferðum á milli vaxmeðferða.
- Forðast skal að nota efni með AHA eða BHA sýrum 48 klst. fyrir vaxmeðferð.
- Forðast skal sólböð, ljósabekki og aðrar hitameðferðir í 24 klst. fyrir vaxmeðferð.
- Ekki nota líkamsolíur eða body lotion sama dag og vaxmeðferð er framkvæmd.
Eftir vax:
- Það er alveg eðlilegt að húðin verði örlítið ert og rauð strax eftir vaxmeðferð, sérstaklega eftir fyrstu meðferð. Húðin mun lagast á sólahring.
- Haltu húðinni hreinni eftir vax, farðu í hrein föt strax eftir vaxmeðferð.
- Forðast skal hita og núning í 24-48 klst eftir vaxmeðferð, einnig skal forðast mikla líkamskrækt og heita tíma.
- Forðast skal að snerta, klóra eða nudda svæðið sem var verið að vaxa.
- Forðast ska kynferðislega virkni beint eftir vaxmeðferð á kynfærum.
- Forðast skal ljósabekki, sólböð og brúnkukrem þangað til roðinn eftir vaxmeðferð er farinn. (24-48 klst)
- Nota skal róandi krem á meðferðasvæðið til að róa og vernda húðina. Nota skal sólarvörn á þau svæði sem sjást (andlit)
- Nokkrum dögum eftir vaxmeðferð má skrúbba húðinna og halda því áfram cirka 3-4 sinnum í viku, nota skal rakagefandi krem daglega til að koma í veg fyrir inngróin hár.